Færslur: 2026 Maí

20.05.2026 23:33

Eigendur Snekkjunnar stefna Rikinu Og Gæslunni

                               Lúxussnekkjan La Datcha á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 2026

 

Eigendur lúxussnekkjunnar La Datcha, sem siglir undir fána Panama, hafa stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur en snekkjunni var í mars meinað að leggjast að bryggju á Akureyri vegna tengsla hennar við Rússa. Landhelgisgæslan vísaði skipinu þá úr íslenskri landhelgi.

Aðalkrafa eigendanna er að ákvörðunin um að meina skipinu að leggjast að bryggju á Akureyri verði felld úr gildi en varakrafan að ólögmætt hafi verið að vísa skipinu úr íslenskri landhelgi.

Gunnar Sturluson, lögmaður eigenda snekkjunnar, segir það undir í málinu hvort þvingunaraðgerðir íslenskra stjórnvalda nái til snekkjunnar.

Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt

Frétt af mbl.is

Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt

Reynir á afturvikra lagasetningu

„Útgerðin þarf að fá úr því skorið hvort þetta standist. Þarna reynir á afturvirka lagasetningu en Evrópusambandið setti reglugerð í apríl sem miða við atburði sem gerðust í febrúar, þannig að þeir létu reglurnar gilda afturvirkt. Þetta var ekki innleitt á Íslandi fyrr en enn síðar. Síðan eru svona tæknileg atriði sem eru undir í málinu,“ segir hann.

Gunnar segir t.a.m. reglugerðina sem um ræðir mæla fyrir um hafnarbann fyrir skip sem falla undir hana en Landhelgisgæslan hafi gengið lengra og vísað skipinu úr íslenskri landhelgi.

„Þetta snýst m.a. um að Landhelgisgæslan tók ákvörðun um að vísa skipinu úr íslenskri lögsögu á grundvelli reglna um þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi og við teljum að ákvörðunin sem gæslan tók sé ólögmæt. Við erum m.a. að krefjast þess að hún verði felld úr gildi.“

Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í

Frétt af mbl.is

Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í

Ótilgreint tjón blasir við

Eru fjárhagslegir hagsmunir undir?

„Það kemur í ljós. Ég get ekki tjáð mig um það.“

Það hlýtur samt að hafa orðið eitthvert tjón, er það ekki?

„Það blasir við.“

Þú getur ekkert slegið á umfang þess?

„Nei.“

Gunnar segir málið hafa hlotið flýtimeðferð fyrir héraðsdómi og að næsta fyrirtaka verði 1. júní.

Áttu von á umfangsmikilli aðalmeðferð þegar að því kemur eða er þetta ekki tiltölulega einfalt?

„Það eru náttúrulega nokkuð flókin lögfræðileg atriði sem eru til skoðunar.“

Heimild Morgunblaðið 

myndir Þorgeir Baldursson 

18.05.2026 18:18

Fyrsta stóra skemmtiferðaskipið til Akureyrar

I morgun kom Norwegian Star til Hafnar á Akureyri og um borð voru 3300 farþegar og 1000 manna áhöfn 

þetta er fyrsta stóra skemmtiferðaskipið sem að kemur hingað 2026 og greinilegt að þetta hefur viðtæk

áhrif á ferðaþjónustuna og bæinn sem að yðaði af lifi þegar ég skrapp i miðbæinn i dag 

                                           Norwegian Star við bryggju á Akureyri i morgun mynd þorgeir Baldursson 2026

14.05.2026 15:41

LataLante á Akureyri

                           Franskt Rannsóknarskip i höfn á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 13 mai 2026

                                 Franskt Rannsóknarskip i höfn á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 13 mai 2026

Franska Rannsóknarskipið LantaLante leiggur hérna á Akureyri og ekki er sagt hversu lengi skipið mun stoppa

L'ATALANTE (IMO: 8716071) is a Research/Survey Vessel and is sailing under the flag of FRANCE.

Her length overall (LOA) is 84.6 meters and her width is 15.85 meters.

13.05.2026 06:31

Þórunn Sveinsdóttir Ve 401

                                   2020 Þórunn Sveinsdóttir Ve 401 mynd þorgeir Baldursson 

10.05.2026 23:40

Skenmmtiferðaskipin i sumar

                 Sölubásar klárir fyrir túrista þegar skemmtferðaskipin koma mynd þorgeir Baldursson 

 

10.05.2026 10:44

Otto N Þorlákssson VE 5

Isfisktogarinn Otto N Þorláksson Ve 5 sem að legið hefur i Hafnarfjarðarhöfn undanfarið mun handa til rækjuveiða 

úti fyrir norðurlandi og mun landa afla sinum á Siglufirði það ei Isfélag Vestmannaeyja sem að gerir skipið út 

                                                1578 Otto N Þorláksson Ve 5 mynd Jón Páll Ásgeirsson 

 

 

09.05.2026 11:57

Gullver NS seldur til Gambíu

Gullver NS seldur til Gambíu

Rætt við Gunnlaug Hafsteinsson vélstjóra sem á margar minningar sem tengjast skipinu

Gullver hefur að undanförnu legið í Hafnarfjarðarhöfn. Nýtt nafn, Elisabeth H, hefur verið málað á skipið og einnig heiti nýrrar heimahafnar, Banjul. Mynd/Grétar Örn Sigfinnsson

Deila 

Gullver NS hefur verið seldur til Gambíu í Afríku. Hann hefur legið í Hafnarfjarðarhöfn að undanförnu og þar var nýtt nafn málað á skipið ásamt nafni nýrrar heimahafnar. Skipið hefur fengið nafnið Elisabeth H og er hin nýja heimahöfn Banjul, höfuðborg Afríkuríkisins Gambiu. Skipið heitir eftir dóttur hins nýja eiganda skipsins, sem er norskur.

 

Síldarvinnslan ákvað að leggja ísfisktogurunum Gullveri NS og Jóhönnu Gísladóttur GK og hefja útgerð togarans Birtings NK í þeirra stað. Gullver og Jóhanna Gísladóttur voru auglýst til sölu í kjölfar þessarar ákvörðunar.

Gullver er dæmigerður skuttogari, smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1983 og 674 brúttótonn að stærð. Í skipinu er 1.770 hestafla vél af gerðinni MAK.

 

Gullver NS 12 kom nýr til Seyðisfjarðar þriðjudaginn 12. júlí árið 1983 og var eigandi hans Gullberg hf., sem var félag í eigu Ólafs M. Ólafssonar og Jóns Pálssonar skipstjóra. Gullberg hf. varð síðar Gullberg ehf. Þann 25. september árið 2014 festi Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað kaup á Gullbergi ehf. Síldarvinnslan hélt áfram að gera Gullver út frá Seyðisfirði eftir að skipið komst í hennar eigu.

 

Ólafur M. Ólafsson og Jón Pálsson stýrðu lengi útgerð Gullvers.

Ólafur M. Ólafsson og Jón Pálsson stýrðu lengi útgerð Gullvers.

 

Seyðisfjörður var heimahöfn skipsins í 43 ár og má halda því fram með góðum rökum að skipið hafi gegnt mikilvægu hlutverki í atvinnulífi staðarins allan þann tíma. Sá maður sem líklega hefur lengst verið skipverji á Gullveri er Gunnlaugur Hafsteinsson vélstjóri.

 

Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Gunnlaug. Hann sagði vissulega margar minningar tengdar skipinu.

„Ég á margar minningar sem tengjast verunni á skipinu og flestar eru þær afar ljúfar og góðar. Mér leið alltaf vel um borð. Ég fór fyrsta túrinn á skipinu 1984 og þá sem vélstjóri. Ég fór síðan einn túr sem matsveinn árið 1985 en á þeim tíma var ég vélstjóri á Gullbergi NS 11. Sumarið 1986 var ég á Berki frá Neskaupstað en var svo fastráðinn vélstjóri á Gullver og hef verið þar frá 1987 og yfirvélstjóri frá árinu 2000. Skipinu hefur afar lítið verið breytt á þessum rúmu 40 árum sem það var gert út frá Seyðisfirði og er það eitt af síðustu skipunum af þessari kynslóð skuttogara.

 

Það eru margir skipsfélagar eftirminnilegir og þá ekki síst þeir menn sem voru á skipinu fyrst eftir að ég kom um borð. Þetta voru hörkukallar og allt saman. Seyðfirðingar sem voru búnir að vera lengi í áhöfninni – eftirminnilegir karakterar og dugnaðarforkar. Það hafa margir góðir menn verið í áhöfn Gullvers í gegnum tíðina og ég hugsa hlýtt til þeirra.

 

Gunnlaugur Hafsteinsson vélstjóri í skrúfuhring Gullvers.

Gunnlaugur Hafsteinsson vélstjóri í skrúfuhring Gullvers.

 

Þegar rifjuð er upp fyrri tíð um borð í skipinu minnist ég þess sérstaklega að ég kláraði véliðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 á meðan ég var úti á sjó. Prófin komu gjarnan á faxi um borð í Gullver og skipstjóranum var treyst til þess að sjá um að allt færi fram eftir reglum. Afar lítið og óstabílt netsamband var þá í gegnum gamla NMT-símann.

 

Háskólanum þótti það merk nýlunda að framkvæma námið með þessum hætti. Eftirminnilegasti túr á skipinu var Smugutúr í október árið 1994 en þangað fórum við einungis einu sinni. Þarna fengum við svakalegt veður, yfir 20 metra vind og 18 stiga frost. Vatn fraus í öllum tönkum og skipið var einn ísklumpur. Við þurftum reglulega að sparka upp hurðum til að tryggja að einhver útgönguleið væri fær.

 

Ísjakar voru umhverfis skipið í túrnum og á þeim sáum við marga ísbirni. Við fleygðum til þeirra lambakjöti og það var áhugavert að sjá þá berjast um ætið. Við þær aðstæður sem þarna ríktu var ljóst að björgunarbátar kæmu að engu gagni ef í nauðir ræki.

 

Gullver NS siglir inn Seyðisfjörð á fögrum sumardegi

Gullver NS siglir inn Seyðisfjörð á fögrum sumardegi

 

Ég hef varðveitt þó nokkuð af myndum og munum úr skipinu og ég veit að mörgum finnst það vel til fundið. Ég hef til dæmis allar véladagbækurnar undir höndum en þær eru 105 að tölu. Ég er einnig með nokkrar skipsdagbækur. Ég held að allir Seyðfirðingar hugsi hlýtt til þessa skips og vonandi gefst okkur tækifæri til að koma þessum myndum og munum þannig fyrir að allir geti skoðað og rifjað upp Gullversárin,” sagði Gunnlaugur.

Heimild Fiskifrettir 

08.05.2026 20:02

Herjólfur 3 i prufusiglingu

               Herjólfur 3 i prufusiglingu á sundunum i vikunni mynd Jón Páll Ásgeirsson 

                           Herjólfur og hafnsögubátur Reykjavikurhafnar Magni  mynd Jón Páll Ásgeirsson 
 

01.05.2026 21:35

Brunadælur Þórs prufaðar á Eyjafirði

                     2769 Varðskipið Þór prufar Slökkvibúnað skipsins Mynd þórhallur Jónsson 2026

Landhelgisgæslan hefur verið áberandi á Akureyri í dag og verður næstu daga, bæði vegna leitar og björgunarráðstefnu Varðbergs sem haldin var í Háskólanum á Akureyri og vegna 100 ára afmælis Gæslunnar sem fagnað er með fjölbreyttum hætti í ár.

Dómsmálaráðherra var um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti á Oddeyrarbryggju um klukkan 11 í dag.

Tæplega 200 nemendur og kennarar Brekkuskóla sem voru í afmælisheimsókn um borð í varðskipinu Þór fylgdust spenntir með lendingunni.

Nemendurnir fengu í kjölfarið tækifæri til að fræðast um þyrluna og skoða.

 

Páll Geirdal, skipherra á varðskipinu Þór, tók á móti dómsmálaráðherra um borð í Þór,

sýndi skipið og kynnti helstu verkefni áhafnarinnar. Að því búnu var ráðherranum boðið til hádegisverðar með áhöfninni.

 

Að heimsókn lokinni var annar af tveimur nýjum aðgerðabátum Landhelgisgæslunnar skoðaður fyrir utan Háskólann í Akureyri.

Nýju bátarnir eru á kerrum og hægt að sjósetja hvar á landinu sem er.

 

Landhelgisgæslan á von á fleiri skólaheimsóknum á morgun í tilefni 100 ára afmælisins auk þess sem varðskipið Þór verður opið almenningi á Akureyri milli klukkan 13 og 16 á laugardaginn. 

 

 

  • 1

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 3171
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 2323
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 2970427
Samtals gestir: 73348
Tölur uppfærðar: 21.5.2026 23:02:19
www.mbl.is